Attentus hlaut viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020
Attentus hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020 að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Um 2,7% fyrirtækja landsins uppfylla skilyrðin við valið. Viðskiptablaðið var með sérútgáfu um þau fyrirtæki sem hlutu þessa viðurkenningu og á bls. 50 er viðtal við Ingu Björgu framkvæmdastjóra Attentus. Þar segir Inga m.a. „Rekstri Attentus mætti í raun skipta í […]
Rafrænt námskeið fyrir stjórnendur sem vilja hvetja starfsmenn sína, veita árangursríka endurgjöf og auka hæfni sína í að taka á erfiðum starfsmannamálum.
Nú eru skrítnir tímar er setning sem við heyrum mikið þessa dagana og það er vissulega ástæða fyrir því. Mikil óvissa ríkir í samfélaginu og heiminum öllum sem getur valdið spennu og jafnvel kvíða hjá rólyndasta fólki. Það er því afar mikilvægt að huga að fólkinu okkar, sýna umburðarlyndi og samkennd, því þegar við upplifum krísur og ógn getur jafnvel skynsamasta fólk […]
Attentus býður, fyrst íslenskra mannauðsfyrirtækja, upp á markþjálfun og mannauðsráðgjöf í fjarvinnslu með hugbúnaðinum Kara Connect. Við getum nú boðið markþjálfun og mannauðsráðgjöf í öruggu fjarvinnsluumhverfi sem getur nýst fyrirtækjum og stofnunum um allt land og getur að auki komið sér einkar vel núna á tímum heimsfaraldurs COVID-19 veirunnar. Kara Connect hefur sett öryggið í fyrsta sæti og […]
Nýjar áskoranir blasa við Nýjar áskoranir blasa við stjórnendum um þessar mundir. Margir foreldrar hafa þurft að vera heima vegna verkfalla starfsfólks á leikskólum og ekki getað mætt til vinnu. Að auki er nokkur fjöldi fólks í sóttkví/heimaveru þessa dagana vegna COVID 19 veirunnar. Ráðgjafar Attentus hafa veitt vinnustöðum og stjórnendum ráðleggingar um hvernig sé […]
Áhugavert viðtal við Ingu Björgu í Vísi “ Yfirmenn oftast gerendur í eineltismálum á vinnustað“ https://www.visir.is/g/2020200119280/yfirmenn-oftast-gerendur-i-eineltismalum-a-vinnustad
Klæðskerasniðin ráðgjöf vegna jafnlaunavottunar, byggð á þekkingu og reynslu. Attentus hefur aðstoðað yfir 60 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög við innleiðingu jafnlaunastaðalsins. Ráðgjafar Attentus hafa yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á mannauðs-, gæða- og kjaramálum. Tveir ráðgjafar Attentus eru meðhöfundar jafnlaunastaðalsins f.h. Samtaka atvinnulífsins. Aðferðafræði Attentus tekur mið af þörfum viðskiptavina sinna hverju sinni og nær til […]
Flott viðtal við hana Drífu okkar í WorldatWork / “Stereotypes of gender are not helpful. It’s about picking the right candidate.” https://www.worldatwork.org/workspan/2019/10/Bonus2-Iceland.pdf
Erlendur Stefánsson hefur gengið til liðs við Attentus – mannauð og ráðgjöf. Erlendur verður hluti af jafnlaunateymi Attentus og sinnir að auki verkefnum á sviði samfélagsábyrgðar, breytingastjórnunar og stefnumótunar. Erlendur hefur góða þekkingu og reynslu á sviði stjórnkerfa, stefnumótunar, úttekta og vottana. Hann hefur starfað sem gæða- og þróunarstjóri á sviði sjávarafurða um árabil, síðast […]
Drífa Sigurðardóttir hefur bæst í eigendahóp Attentus en hún hóf störf hjá félaginu sem ráðgjafi árið 2017. Eigendur Attentus eru nú fimm talsins, Guðríður Sigurðardóttir, Inga Björg Hjaltadóttir, Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, Sigríður Þorgeirsdóttir auk Drífu. Árný Elíasdóttir, sem var einn af stofnendum Attentus og meðeigandi, hefur selt hlut sinn í fyrirtækinu en mun áfram sinna […]