EFST Á BAUGI

Nýr starfsmaður í jafnlaunateymið

Við bjóðum Kjartan Vífil Iversen velkominn til starfa hjá okkur. Hann er liðsmaður í jafnlaunateymi Attentus. Kjartan Vífill lauk MA gráðu í aðferðarfræði frá Háskóla Íslands og BA í félagsfræði frá sama skóla.

Kjartan Vífill hefur mjög góða þekkingu og reynslu af gagnasöfnun og greiningum. Hann starfaði hjá Hagstofu Íslands 2014-2015 við gagnasöfnun til úrvinnslu fyrir vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar og rannsókn á útgjöldum heimila. Áður var hann stundakennari við Háskóla Íslands og kenndi þar m.a. tölfræði.

Skráðu þig á póstlistann