EFST Á BAUGI

María Klara nýr ráðgjafi hjá Attentus

Við hjá Attentus fögnum nýjum liðsmanni og bjóðum Maríu Klöru Jónsdóttur hjartanlega velkomna í hópinn.

María Klara er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi en hún lauk lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík og stundaði einnig nám við lagadeild Stockholm University. Eftir að hafa útskrifast með meistaragráðu í lögfræði hóf hún störf sem mannauðsstjóri flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair og hefur því víðtæka reynslu af mannauðsmálum. María Klara hefur sótt námskeið á sviði mannauðsmála og sinnt ráðgjöf er varðar ráðningar, áminningar, uppsagnir og starfslok.María Klara starfaði síðast sem héraðsdómslögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni frá árinu 2018 til 2021 og starfaði einnig sem lögfræðingur endurupptökunefndar. Sem lögmaður hefur María Klara sinnt fjölbreyttum verkefnum m.a. á sviði vinnuréttar, stjórnsýsluréttar og við málflutning og þekkir þannig til starfsemi dómstóla.

Skráðu þig á póstlistann