EFST Á BAUGI

Bakhjarl við innleiðingu á jafnlaunastaðfestingu

Fyrirtæki þar sem 25-49 starfa að jafnaði á ársgrundvelli geta samkvæmt lögum nr. 150/2020, valið að öðlast jafnlaunastaðfestingu sem jafnréttistofa veitir eða öðlast jafnlaunavottun. Þurftu fyrirtæki eða stofnanir að ljúka þeirri vinnu ekki síðar en 31. desember 2022 sl.

Fyrirtæki sem óska eftir jafnlaunastaðfestingu skulu uppfylla ákveðin skilyrði með gögnum sem berast til jafnréttisstofu. Hægt er að skipta þessu í sex atriði:

-Jafnlaunastefnu

-Jafnréttisáætlun

-Starfaflokkun

-Launagreining

-Úrbótaáætlun

-Samantekt (rýni stjórnenda)

Attentus, mannauður og ráðgjöf, aðstoðar fyrirtæki við innleiðingu jafnlauna staðfestingar og getur sniðið ráðgjöfina að óskum viðskiptavinar. Hjá Attentus er mikil þekking og reynsla á jafnlaunavottun, en Attentus hefur aðstoðað yfir 200 fyrirtæki og stofnanir við innleiðingu á jafnlaunavottuninni.

Fyrir frekari upplýsingar eða ósk um fund, ekki hika við að hafa samband við þá Ásgeir Gunnarsson, asgeir@attentus.is eða Jóhann Pétur Fleckenstein johann@attentus.is

Að lokum, allar nánari upplýsingar um þjónustu Attentus og ráðgjafana má finna hér á heimasíðu okkar, www.attentus.is

Teymið: Ásgeir Gunnarsson, Jóhann Pétur Fleckenstein og Drífa Sigurðardóttir.

Skráðu þig á póstlistann