Inngilding og fjölbreytileiki með áherslu á erlent starfsfólk

Með vaxandi fjölda erlends starfsfólks er mikilvægt að aðlagast og skoða nýja nálgun í málum sem tengjast inngildingu, fjölbreytileika og skilningi á málefnum erlends starfsfólks. Við hjá Attentus erum að opna á samtal og vekja stjórnendur til umhugsunar um mismunandi menningarheima og áhrif þess á vinnustaði.

Við bjóðum upp á vinnustofur og fyrirlestra sem snúa að daglegum áskorunum tengdum menningarmun, ásamt almennri ráðgjöf varðandi vinnu með starfsfólki af erlendum uppruna með áherslu á pólskt starfsfólk. Markmiðið er að auka skilning stjórnenda á menningu og þörfum starfsmanna af erlendum uppruna og á sama tíma auka skilning erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði og menningu. Í fræðsluerindum er fjallað um menningarmun, fjölmenningu, staðalímyndir, samskipti, endurgjöf, stjórnun og upplýsingaflæði.

Við höfum starfað með fjölmörgum fyrirtækjum á síðustu árum og aðstoðað þau í mannauðsmálum með það að markmiði að færa mannauðsmál erlendra starfsmanna upp á sama þjónustustig og hjá öðru starfsfólki. Við leggjum áherslu á góða þjónustu við starfsfólk og stjórnendur, samtöl við starfsfólk, þjálfun stjórnenda um fjölmenningu og menningarmun, skýra verkferla og gott upplýsingaflæði.

Við bjóðum m.a. upp á;

  • Mannauðsstjóra til leigu og bakhjarl fyrir fyrirtæki með erlent starfsfólk
  • Starfsmannasamtöl við erlent starfsfólk
  • Fræðslu um fjölmenningu og menningarmun
  • Ráðningar
  • Starfslok
  • Móttöku nýliða
  • Þýðingar og handbækur á pólsku

Tengiliðir

Monika Katarzyna Waleszczynska