Dominique starfar sem ráðgjafi hjá Attentus. Helstu verkefni Dominique eru almenn mannauðsráðgjöf, jafnlaunavottun og launagreiningar.

Dominique er með MS-gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún er einnig með vottun í mannauðsgreiningum. 

Dominique kemur til Attentus frá Wisefish, þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri. Þar áður vann hún hjá Wise, systurfélagi Wisefish sem mannauðssérfræðingur. Hún starfaði einnig hjá Tempo, þar sem hún var hluti af alþjóðlegu mannauðsteymi og sinnti mannauðsmálum fyrir skrifstofuna á Íslandi.