Stjórnarlaun 2025

Stjórnarlaun Attentus og PwC 2025 komin út

 

Mikill munur á stjórnarlaunum eftir félagaformi

Á árinu 2024 voru stjórnarlaun hjá íslenskum félögum á breiðu bili en á heildina litið hafa stjórnarlaun hækkað umtalsvert frá árinu 2022. Miðgildi stjórnarlauna árið 2024 er 7,2 milljónir króna samanborið við 4,9 milljónir ári 2022, en það jafngildir um 47% hækkun á tveimur árum. Talsverður munur er á stjórnarlaunum eftir því hvort um er að ræða skráð félög, ríkisfyrirtæki eða lífeyrissjóði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt Attentus og PwC á stjórnarlaunum á árinu 2024. Ekki kemur á óvart að hæstu stjórnarlaunin eru greidd til stjórnarformanna í skráðum félögum. Laun stjórnarformanna í skráðum félögum, lífeyrissjóðum og ríkisfyrirtækjum eru á bilinu 3,6-15,3 milljónir króna á ári. Miðgildi árslauna stjórnarformanna í skráðum félögum var 12 milljónir króna sem er þrefalt hærra en hjá stjórnarformönnum lífeyrissjóða. Miðgildi árslauna stjórnarformanna í ríkisfyrirtækjum er um 8,3 milljónir, því nær því sem gerist hjá skráðum fyrirtækjum en lífeyrissjóðum. Skráð félög greiða stjórnarformönnum að meðaltali um 855 þúsund krónur á hvern fund en lífeyrissjóðir greiða að meðaltali um 328 þúsund krónur á hvern fund.

Athygli vekur að konur gegna stjórnarformennsku í 64% tilvika hjá lífeyrissjóðum, í 40% tilvika hjá ríkisfyrirtækjum en einungis 12% stjórnarformanna skráðra félaga eru konur.

Í samantekt Attentus og PwC er að finna greiningar á launaupplýsingum stjórna og stjórnenda í alls 43 félögum; 25 skráðum félögum, 7 ríkisfyrirtækjum og 11 lífeyrissjóðum. Upplýsingarnar voru fengnar úr ársskýrslum og öðrum opinberum gögnum þessara fyrirtækja. Auk upplýsinga og greininga um launakjör stjórnarmeðlima og stjórnenda er í samantektinni greinargóð umfjöllun um umgjörð í kringum launasetningu stjórna, störf og hlutverk starfskjaranefnda og góða stjórnarhætti.

Attentus sérhæfir sig í alhliða mannauðsráðgjöf fyrir íslensk fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir. Attentus veitir ráðgjöf um allt sem snýr að rekstri út frá áherslum mannauðsstjórnunar ásamt því að bjóða upp á sálfræðiþjónustu með áherslu á atvinnulífið.

PwC á Íslandi býður upp á víðtæka þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, endurskoðunar og skattamála. PwC gefur árlega út skýrsluna Markaðslaun á Íslandi (Markaðslaun PwC), þar sem er að finna ítarlega greiningu á launaupplýsingum íslenskra fyrirtækja.

Samantekt Attentus og PwC er til sölu hjá Attentus og PwC og er hægt að panta skýrsluna með því að senda á tölvupóst á attentus@attentus.is.

Verð:

Með því að kaupa skýrslu um stjórnarlaun sem Attentus og PwC hafa gefið út færð þú aðgang að áreiðanlegri launagreiningu fyrir stjórnir fyrirtækja. Skýrslan er 29 blaðsíður með margvíslegum áhugaverðum niðurstöðum og fróðleik

Frekari upplýsingar veitir Drífa Sigurðardóttir, drifa@attentus.is

Verð á skýrslunni Stjórnarlaun 2025 er kr. 199.000, en veittur er kr. 40.000 afsláttur fyrir fyrirtæki sem taka þátt í könnun meðal stjórnarfólks og stjórnenda.