Úttektir og greiningar

Árangursmat stjórna

Árangursmat stjórna
Attentus sér um að leggja fyrir árlegt árangursmat stjórna í samræmi við leiðbeiningar Viðskiptaráðs um góða stjórnarhætti. Matið er annað hvort framkvæmt með viðtölum, rafrænni könnun eða blöndu af báðu. Í lokin er ítarlegri skýrslu skilað þar sem niðurstöður koma fram og tillögur að aðgerðaráætlun fyrir stjórn.

Skimun fyrir kulnunareinkennum á vinnustað

Skimun fyrir kulnunareinkennum á vinnustað
Attentus býður upp á skimum á kulnunareinkennum fyrir vinnustaði. Lagður er fyrir rafrænn spurningalisti sem skimar fyrir einkennum kulnunar hjá starfsfólki. Attentus veitir ráðgjöf um hvernig megi bregðast við niðurstöðum og setur fram aðgerðaráætlun um næstu skref.

360° stjórnendamat

360° stjórnendamat
Stjórnendamat auðveldar stjórnendum að átta sig á styrkleikum sínum og veikleikum og hvar tækifæri til umbóta liggja. 360° stjórnendamat Attentus byggir á CCL (Center of Creative Leadership).

Úttekt á mannauðsmálum

Úttekt á mannauðsmálum
Góður jarðvegur er grundvöllur vaxtar. Það þarf trausta innviði, öflugan mannauð og góð rekstrarskilyrði. Með greiningu á mannauðsmálum fá fyrirtæki skýra mynd á hvort grunnurinn er traustur og hvaða tækifæri eru til vaxtar.

Vinnustaðargreining

Vinnustaðargreining
Við bjóðum upp á sérsniðnar greiningar sem eru hannaðar í samræmi við þarfir og óskir hvers viðskiptavinar við að greina starfsánægju með það að markmiði að auka vellíðan starfsmanna. 

Lykilmælikvarðar í mannauðsmálum (KPI)

Lykilmælikvarðar í mannauðsmálum (KPI)
Við aðstoðum fyrirtæki við að skilgreina lykilárangursmælikvarða í mannauðsmálum út frá stefnu fyrirtækisins. Sem dæmi um mælingar má nefna starfsmannaveltu, starfsánægju, fjarvistir, stjórnun, vinnustaðarmenningu ofl. þætti.

Launagreiningar

Launagreiningar
Attentus veitir klæðskerasniðna ráðgjöf þegar kemur að launagreiningum fyrir fyrirtæki og stofnanir.  Attentus vinnur með viðskiptavinum við að þróa og útfæra lausnir sem nýtast í síbreytilegu umhverfi og er í samræmi við markmið og stefnu viðskiptavinarins.

Vinnuréttur

Vinnuréttur
Hjá Attentus starfa lögfræðingar með víðtæka reynslu og þekkingu á sviði stjórnsýslu- og vinnuréttar.