Þann 1. júní sl. samþykkti Alþingi breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Með breytingunum fellur niður krafa um ytri vottun hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Hvaða áhrif hefur þetta á þinn vinnustað?
Ekki er lengur gerð krafa um að ytri aðili votti jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana.
Kröfur um sömu laun fyrir jafnverðmæt störf eru enn í gildi, sem þýðir að fyrirtæki með 50 manns eða fleiri þurfa að:
- Flokka störf á samræmdan hátt
- Framkvæma launagreiningar
- Geta sýnt fram á að laun séu ákvörðuð á málefnanlegan hátt
- Bregðast við ef óútskýrður launamunur kemur í ljós
- Senda skýrslu til Jafnréttisstofu
- Skila þarf gögnum og upplýsingum um framkvæmd jafnlaunamála á þriggja ára fresti
Fyrirtæki sem hafa þegar hlotið jafnlaunavottun skila gögnum þremur árum frá síðustu vottun
Hvað þýðir þetta í raun?
Vinnan sem hefur verið lögð í jafnlaunavottun undanfarin ár nýtist áfram. Flest fyrirtæki eru því þegar komin langt með að uppfylla nýjar kröfur. Meginbreytingin er að ekki er lengur gerð krafa um formlega ytri vottun eða viðhald vottunarkerfis. Áherslan færist þess í stað yfir á að fyrirtæki geti sýnt fram á jafnræði í launaákvörðunum sem fyllt er eftir með kröfu um skýrslugjöf.
Hvernig getur Attentus aðstoðað?
Við aðstoðum fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög við að:
- Greina hvaða breytingar þarfa að gera til að uppfylla nýjar kröfur
- Yfirfara starfaflokkun
- Framkvæma launagreiningar
- Skýrslugjöf til Jafnréttisstofu
Nánari upplýsingar veitir Drífa Sigurðardóttir, drifa@attentus.is.



