Klæðskerasniðin ráðgjöf vegna jafnlaunavottunar, byggð á þekkingu og reynslu.
Attentus hefur aðstoðað yfir 60 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög við innleiðingu jafnlaunastaðalsins. Ráðgjafar Attentus hafa yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á mannauðs-, gæða- og kjaramálum. Tveir ráðgjafar Attentus eru meðhöfundar jafnlaunastaðalsins f.h. Samtaka atvinnulífsins.
Aðferðafræði Attentus tekur mið af þörfum viðskiptavina sinna hverju sinni og nær til innleiðingarinnar í heild sinni eða stökum þáttum hennar, svo sem:
- Greining á stöðunni og aðgerðaráætlun
 - Mótun stefna í jafnréttismálum
 - Flokkun starfa til að kanna hvaða störf eru jafnverðmæt
 - Tölfræðileg greining á launum til að kanna hvort um kynbundinn launamun sé að ræða
 - Gerð verklagsreglna
 - Framkvæmd innri úttekta
 - Undirbúningur og framkvæmd rýnifunda
 - Fræðsla og þjálfun
 


