Attentus veitir klæðskerasniðna ráðgjöf þegar kemur að launagreiningum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Attentus vinnur með viðskiptavinum við að þróa og útfæra lausnir sem nýtast í síbreytilegu umhverfi og er í samræmi við markmið og stefnu viðskiptavinarins.
Launagreiningar fyrir jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu
- Launagreining fyrir jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu þar sem áherslan er á að greidd séu jöfn laun fyrir jafnverðmæt eða sambærileg stö
- Niðurstöður afhentar í formi skýrslu.
Markaðslaunagreining á störfum
- Unnin er markaðslaunagreining vegna launa starfsheita.
- Verkkaupi afhendir skjal með launaupplýsingum starfsmanna þar sem kemur fram starfsheiti og stutta lýsingu starfi. Jafnframt koma fram aðrar bakgrunnsupplýsingar eins og lífaldur, kyn og starfsaldur o.s.frv.
- Attentus vinnur tölfræðisamantekt og setur fram greiningu á launum m.v. niðurstöður launakannana og kjarasamninga.
- Helstu niðurstöður teknar sama í samantekt.
- Niðurstöður afhentar í formi skýrslu.
Launagreiningar – Launasetning starfa innan fyrirtækis
- Launagreiningar þar sem rýnt er launasetningu fyrirtækisins almennt.
- Attentus útbýr samantekt og launamælaborð þar sem farið yfir launasetningu fyrirtækisins, allra starfa og hvernig áhrif mismunandi launaliða hefur áhrif.
- Attentus kemur með tillögu að starfaflokkun og aðgerðaráætlun ef þörf krefur.
Attentus hefur aðstoðað yfir 200 fyrirtæki og stofnanir við launagreiningar.